Innlent

Umferðin minnkaði um 12% um síðustu helgi

Umferðin um nýliðna verslunarmannahelgi var rúmlega tólf prósentum minni en um sömu helgi í fyrra, samkvæmt talningu á sex stöðum á hringveginum út frá höfuðborgarsvæðinu.

Umferðin austur fyrir fjall var rúmlega 13 prósentum minni og norðurfyrir  reyndist samdrátturinn rösk tíu prósent. Samdráttur varð líka á síðasta ári frá fyrra ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×