Innlent

Segir gæsluna ekki hafa brugðist á Þjóðhátíð

Formaður Þjóðhátíðarnefndar segir gæsluna ekki hafa brugðist í Vestmannaeyjum um helgina. Maðurinn sem grunaður er um nauðgun á hátíðinni var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag, en alls komu að minnsta kosti sex nauðgunarmál upp á útihátíðum um helgina.

Maðurinn sem grunaður er um nauðgun í Vestmannaeyjum aðfaranótt sunnudags var leiddur fyrir dómara í morgun. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudaginn 5. ágúst og sætir einangrun þann tíma.

Maðurinn er 25 ára gamall og gat konan sem varð fyrir nauðguninni gefið lýsingu á honum. Gæslumenn í Herjólfsdal höfðu svo uppi á manninum og hann var handtekinn.

Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi segir að farið hafi verið fram á gæsluvarðhald af tveimur ástæðum. Annars vegar sé maðurinn talinn hættulegur og hinsvegar sé þetta gert til að hann geti ekki spillt fyrir rannsókninni með einhverjum hætti með því að ganga laus.

Auk þessa máls bárust fjórar aðrar tilkynningar um nauðganir á hátíðinni en Oddur segir aðeins eina nauðgun til rannóknar.

Nauðgunarmálin hafa sett svartan blett á Þjóðhátíð í Eyjum þetta árið. Svo virðist sem ómögulegt sé að halda hátíð á borð við Þjóðhátíð í Eyjum án þess að fréttir af nauðgunum berist dagana á eftir.

Páll Scheving Ingvarsson, formaður þjóðhátíðarnefndar segir að tekið sé mark á öllum upplýsingum og öllu sem berist til nefndarinnar. Öll gagnrýni sé tekin mjög alvarlega. Hann telur gæsluna ekki hafa brugðist um helgina þrátt fyrir þau nauðgunarmál sem komu upp. „Ef það reynist rétt þá munum við svo sannarlega bæta það og stoppa í þau göt."

Auk nauðgunarmálanna í Eyjum kom ein tilkynning um nauðgun fram á Akureyri. Það er því ljóst að þó skipuleggjendur hátíða hafa sagt þær hafa farið vel fram - eru margir sárir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×