Innlent

Útskrifuð af sjúkrahúsi

Landspítali Háskólasjúkrahús, Borgarspítali.
Landspítali Háskólasjúkrahús, Borgarspítali.
Karlmaður og kona sem flutt voru á sjúkrahús með þyrlu landhelgisgæslunnar í gærkvöldi slösuðust ekki mikið að sögn vakthafandi læknis á Landspítalanum, og hafa nú verið útskrifuð af sjúkrahúsinu.

Bifreið þeirra lenti utan vegar við Laugavatnsveg þegar ökumaðurinn var að aka fram úr annari bifreið, en honum virðist hafa fipast við aksturinn með fyrrgreindum afleiðingum.

Svo virðist sem hvorki maðurinn né konan hafi verið í öryggisbelti en annað þeirra kastaðist út úr bifreiðinni á meðan hitt endaði í aftursæti bifreiðarinnar.

Þau voru bæði flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur eins og áður sagði, en þyrlan var að koma úr eftirlitsflugi með lögreglu þegar tilkynning barst um slysið.



Tengdar fréttir

Bílvelta á Laugarvatnsvegi

Bílvelta varð á Laugarvatnsvegi við Þóroddsstaði nú fyrir stundu. Tveir voru í bílnum. Sjúkrabílar og þyrla Landhelgisgæslunnar eru komin á staðnum. Ekki er vitað hvort meiðls þeirra sem voru í bílnum séu alvarleg. Tildrög slyssins eru ekki kunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×