Innlent

Næturferð Herjólfs fellur niður

Mjög vel hefur gengið að flytja Þjóðhátíðargesti frá Eyjum og því verður næturferðin klukkan hálf þrjú aðfaranótt miðvikudags felld niður.

Forsvarsmenn Herjólfs vilja koma því á framfæri að miðar í þessa ferð gilda í aðrar ferðir í dag og á morgun, en allir sem áttu bókað fyrir bíla í ferðinni þurfa að endurbóka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×