Innlent

Helgi Magnús skipaður vararíkissaksóknari

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Helgi Magnús Gunnarsson er nýr vararíkissaksóknari. Mynd/ HARI.
Helgi Magnús Gunnarsson er nýr vararíkissaksóknari. Mynd/ HARI.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur skipað Helga Magnús Gunnarsson í embætti vararíkissaksóknara við embætti ríkissaksóknara. Helgi Magnús er fæddur 4. desember 1964. Hann lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1998 og stundaði framhaldsnám á háskólastigi í rannsókn og saksókn efnhagsbrota við Polithøgskolen 2004-2005.

Helgi Magnús fékk leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi 2001. Hann hefur verið saksóknari efnhagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra frá árinu 2007, en hefur verið í leyfi frá þeim störfum síðan haustið 2010 þegar hann var kosinn varasaksóknari Alþingis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×