Innlent

Rúmlega 660 þúsund lítrar af áfengi drukknir um helgina

Mynd úr safni
Sala áfengis í vikunni fyrir verslunarmannahelgina var tæplega 11 prósent minni í lítrum talið, en í sömu viku fyrir ári síðan. Samtals seldust 662 þúsund lítrar af áfengi í ár en 744 þúsund lítra í fyrra.

Sex prósent færri viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar í vikunni eða tæplega 117 þúsund á móti 124 þúsund í fyrra.

Á vef Vínbúðarinnar segir að á föstudagurinn fyrir verslunarmannahelgi sé venjulega einn annasamasti dagur ársins í Vínbúðunum „og síðastliðinn föstudagur var þar engin undantekning. 39.700 viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar þann dag á meðan 43.700 heimsóttu Vínbúðirnar sama dag fyrir ári, eða rúmlega 9% færri viðskiptavinir."

„Í Vínbúðinni í Vestmannaeyjum komu um 2.570 viðskiptavinir föstudag og laugardag um verslunarmannahelgi í fyrra, en í ár heimsóttu um 2.127 viðskiptavinir Vínbúðina, eða 17,2% færri viðskiptavinir. Á Akureyri komu um 4.848 viðskiptavinir sömu daga fyrir ári en 4.759 í ár eða 1,8% færri viðskiptavnir. Hins vegar komu 6% fleiri viðskiptavinir í Kringluna þessa sömu daga miðað við árið í fyrra og 11% fleiri í Smáralind," segir ennfremur á vefnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×