Innlent

Í gæsluvarðhaldi fram á föstudag

Herjólfsdalur í Vestmannaeyjum
Herjólfsdalur í Vestmannaeyjum Mynd/Óskar P. Friðriksson
Karlmaður á þrítugsaldri, sem grunaður er um nauðgun í Herjólfsdal aðfaranótt sunnudags, var úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag í Héraðsdómi Suðurlands nú fyrir stundu.

Lögreglustjórinn á Selfossi fór fram á gæsluvarhald yfir manninum en hann hefur verið í haldi lögreglu frá því á laugardagsmorgun. Konan gat lýst manninum og höfðu gæslumenn í Herjólfsdal uppi á honum.

Lögreglan lýsir eftir vitnum af atvikinu en það mun hafa átt sér stað í og við salernisaðstöðu í Herjólfsdal milli klukkan 4 og 5 aðfaranótt sunnudagsins.

Hægt er að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480 1010 eða lögregluna í Vestmannaeyjum 481 1665.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×