Innlent

Engar tilkynningar um innbrot

Engar tilkynningar um innbrot höfðu borist til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu snemma í morgun og engin tilkynning barst í gær.

Þetta er gleðiefni að sögn lögreglu, því oftar en ekki hafa þjófar farið ránshendi um heimili fólks, sem hefur brugðið sér út úr bænum um þessa helgi.

Lögregla hélt uppi eftirliti í íbúðarhverfum eftir því sem mannafli leyfði. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×