Innlent

Umferðin gekk vonum framar

Umferð gekk vonum framar á öllum helstu leiðum þrátt fyrir umferðarþunga í gær og alveg fram á kvöld.

Ekkert alvarlegt slys varð, en ung kona meiddist eitthvað þegar bíll hennar skall aftan á jeppa í Norðurárdal í gærkvöldi. Ökumaður jeppans hafði snar hægt á bílnum til að aka ekki á kindahóp, sem hljóp inn á veginn.

Tvennt meiddist líka, en þó ekki alvarlega þegar bíll þeirra valt skammt frá Laugarvatni laust fyrir kvöldmat í gærkvöldi. Þyrla var á þeim slóðum við umferðareftirlit, og flutti hún fólkið á slysadeild Landsspítalans til skoðunar og aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×