Innlent

Krafa um gæsluvarðhald yfir meintum nauðgara

Lögreglan gerir kröfu um að karlmaður, sem er grunaður um nauðgun í Herjólfsdal aðfararnótt laugardags verði úrskurðaður í viku gæsluvarðhald.

Héraðsdómur Suðurlands fjallar um kröfuna klukkan ellelfu fyrir hádegi. Konan gat lýst manninum og höfðu gæslumenn í Herjólfsdal uppi á honum.

Önnur kona hefur kært nauðgun á þjóðhátíðinni, en hún getur ekki bent á ofbeldismanninn. Mál hennar er þó rannsakað áfram.

Þrjú mál til vilðbótar komu upp, en þar eru málsatvik óljós og þolendur hafa ekki kært formlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×