Innlent

Lögregla lýsir eftir vitnum vegna nauðgunar

Mynd/Pjetur
Lögreglan óskar eftir vitnum að stympingum karlmanns við rúmlega tvítuga stúlku við salernisaðstöðuna í Herjólfsdal milli klukkan fjögur og fimm í fyrrinótt. Maðurinn sem er á þrítugsaldri er grunaður um að hafa nauðgað stúlkunni. Hún leitaði til lögreglu um miðjan dag í gær og hófst þá rannsókn lögreglu en stúlkan fór á neyðarmóttöku Landspítalans í gærkvöldi.

Maðurinn var handtekinn á hátíðarsvæðinu í nótt og færður á lögreglustöðina í Vestmannaeyjum. Í morgun var farið með hann í land í fangageymslu lögreglunnar á Selfossi sem annast, í samvinnu við lögregluna í Vestmanneyjum, rannsókn málsins.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480-1010 eða lögregluna í Vestmanneyjum í síma 481-1665.




Tengdar fréttir

Leitaði til neyðarmóttöku vegna nauðgunar

Ein kona hefur leitað til bráðamóttöku Landsspítalans vegna nauðgunar um Verslunarmannahelgina. Atvikið átti sér stað í Eyjum, en samkvæmt Eyrúnu Jónsdóttur, hjúkrunarfræðingi, er von á tveimur til þremur konum til viðbótar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×