Innlent

Leituðu að erlendum ferðamönnum

Ferðamennirnir fundust heilir á húfi við Galtarvita
Ferðamennirnir fundust heilir á húfi við Galtarvita Myndin úr safni
Lögreglan á Vestfjörðum gerði mikla leit að erlendum ferðamönnum á miðnætti í nótt. Mennirnir, sem voru á róðrarbáti, gáfu upp ferðaáætlun, sem þeir stóðu ekki við og voru þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út ásamt björgunarsveitum.

Þeir fundust þó heilir á húfi við Galtarvita og gáfu þá skýringu að þeir hefðu breytt ferðaáætlun sinni án þess að láta vita. Ekkert amaði að mönnunum en óttast var um þá um stund þar sem leiðindarverður var á svæðinu.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×