Innlent

Tvær líkamsárásir á Akureyri

Mynd/Gísli Berg
Á bilinu 10-12 þúsund manns voru á lokatónleikum Einnar með öllu á Akureyri í gærkvöldi en þeir fóru fram á flötinni utan við Samkomuhúsið. Meðal þeirra sem komu fram voru Jón Jónsson, Dikta og Helgi Björnsson. Þá var flugeldum skotið upp og voru dansleikir haldnir víða fram eftir nóttu.

Skemmtanahald fór að mestu vel fram í nótt, að sögn lögreglunnar á Akureyri. Tvær minniháttar líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu og þá var maður handtekinn með lítilræði af fíkniefnum. Einn gisti í fangageymslu í nótt sökum ölvunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×