Innlent

Gibb-bróðir syngur með Bo Hall

Bee Gees gerðu garðinn frægan með smellum á borð við How deep is your love og More than a woman. Hér sést Robin Gibb á tónleikaferðalagi á síðasta ári
Bee Gees gerðu garðinn frægan með smellum á borð við How deep is your love og More than a woman. Hér sést Robin Gibb á tónleikaferðalagi á síðasta ári
Einn þeirra Gibb-bræðra úr hljómsveitinni Bee Gees, Robin Gibb, er væntanlegur til landsins fyrir jólin og mun hann koma fram á Jólatónleikum Björgvins Halldórssonar.

Bee Gees var skipuð þremur Gibb-bræðrum, Maurice og Barry, auk Robin. Eitt þekktasta lag þeirra er diskósmellurinn Staying alive úr dansmyndinni Saturday Night Fever.

Við skyndilegt fráfall Maurice árið 2003 ákváðu Barry og Robin að leggja niður Bee Gees sem hljómsveit eftir 45 ára starf.

Samkvæmt tilkynningu frá Senu hafa aðeins Elvis Presly, Bítlarnir, Michael Jackson, Garth Brooks og Paul McCartney selt jafn mikið af plötum, eða meira, en Gibb bræður og eru þeir söluhæsta tríó heims. Á fjörutíu ára ferli sendu þeir rúmlega 220 milljónir platna og fengu sjö Grammý verðlaun.

„Fáar hljómsveitir hafa haft jafn mikil áhrif á dægurmenningu samtímans og í heildina liggja eftir Bee Gees bræður rúmlega 60 toppsmellir. Á meðal þeirra er mörg þekktustu og mest spiluðu lög veraldar: How Deep is Your Love, You Should Be Dancing, Stayin' Alive, Night Fever, More Than a Woman, Nights on Broadway, Jive Talkin', Tragedy, Massachusetts, I've Gotta Get A Message To You, Lonely Days, How Can You Mend A Broken Heart, You Win Again og For Whom The Bell Tolls. Bræðurnir þrír voru einkar samrýmdir og sömdu alla tíð öll lög og alla texta í sameiningu," segir í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×