Innlent

Einn besti dagur sumarsins í Reykja­vík um helgina

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Stærsta ferðahelgi ársins er fram undan en sumarblíðuna verður líklega helst að finna á höfuðborgarsvæðinu.
Stærsta ferðahelgi ársins er fram undan en sumarblíðuna verður líklega helst að finna á höfuðborgarsvæðinu. vísir/Vilhelm

Það stefnir í einn besta dag sumarsins í Reykjavík um verslunarmannahelgina. Enn önnur lægðin er við landið og veldur rigningu og hlýjum blæstri um næstu helgi.

Ein stærsta ferðahelgi ársins er fram undan; Verslunarmannahelgin með tilheyrandi bæjar- og útihátíðum. Veðrið leikur eflaust stóran þátt í skipulagningu einhverra og að sögn Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræðings, hefur útlitið verið betra.

„Það er lægð, dálítið mikil um sig miðað við sumarið, sem mun stjórna veðrinu hjá okkur. Hún verður fyrir sunnan landið og við verðum ekki fyrir beinum áhrifum frá henni, fyrir utan blástur á miðvikudag og fimmtudag og skil lægðarinnar ganga yfir landið. Síðan á föstudag er gert ráð fyrir að þessi sama lægð beini til okkar nýjum skammti af röku en líka hlýju lofti,“ segir Einar.

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur.Vísir/Vilhelm

Þessu fylgir kunnugleg spá suðaustan og austanlands, eða talsverð rigning. Á laugardag mun síðan hvessa en blásturinn verður þó hlýr og hitinn gæti farið upp í allt að tuttugu stig á Snæfellsnesi.

Horfurnar eru bestar í kringum höfuðborgarsvæðið.

„Það er óvenjulegt þegar maður flettir upp tjaldveðrinu á Bliku að þá kemur tjaldsvæðið í Reykjavík þar hæst. Ég hef aldrei séð það áður. Og þar á eftir tjaldsvæðið í Selvogi.“

Útlitið sé sérstaklega gott á laugardag, eða sól og hlýindi.

„Hitinn í Reykjavík gæti þess vegna farið í sautján til nítján stig sem gerði þann dag þá að einum af bestu dögum sumarsins.“

Í Vestmannaeyjum verður talsverður dagamunur á veðrinu. Helgin hefst með strekkingi á föstudag.

„Síðan snýst hann í norðaustanátt á laugardag og þá er nú yfirleitt skjól í Eyjum en það gæti mögulega rignt. Svo er fínasta veður á sunnudag, svona í stórum dráttum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×