Innlent

Ökumaður tekinn á 155 km hraða á Reykjanesbraut

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók ökumann sem mældist á 155 kílómetra hraða á Reykjanesbraut í nótt.

Maðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu til að byrja með og var hafin eftirför. Hann stöðvaði þó bifreið sína skömmu síðar.

Lögreglu grunaði strax að maðurinn væri undir áhrifum fíkniefna og var hann því fluttur á lögreglustöð. Þar var málið afgreitt og honum sleppt að því loknu. Hann má fastlega búast við ökuleyfissviptingu og hárri sekt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×