Innlent

Þrjár kannabisræktanir í Hafnarfirði

Mynd úr safni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjár kannabisræktanir í Hafnarfirði á föstudag og laugardag.

Nokkrir karlmenn voru handteknir og yfirheyrðir í tengslum við aðgerðirnar en lagt var hald á bæði kannabisplöntur og græðlinga auk ýmiss búnaðar sem fylgir slíkri starfsemi. Á einum staðnum var einnig lagt hald á töluvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Á sunnudag var einnig framkvæmd húsleit í Hafnarfirði og þá fundust nokkrir tugir gramma af marijúana.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×