Innlent

Heimili og skóli: Verkfall mun hafa lamandi áhrif

Landssamtök foreldra, Heimili og skóli, segjast í yfirlýsingu hafa miklar áhyggjur af yfirvofandi verkfalli leiksskólakennara. „Slíkt verkfall mun hafa mjög slæmar afleiðingar fyrir leikskólabörn og foreldra í landinu og lamandi áhrif fyrir samfélagið í heild,“ segir í yfirlýsingunni.  Þá hvetja samtökin samningsaðila til að komast að samkomulagi sem fyrst. „Mikilvægt er að í leikskólum landsins starfi metnaðarfullt fagfólk því þar fer fram mikilvægt starf þar sem grunnur er lagður að þroska og menntun barna.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×