Innlent

Stöðvaður fyrir fíkniefnaakstur

Lögreglan á Akranesi stöðvaði för ökumanns á Akrafjallsvegi í liðinni viku þegar grunur vaknaði um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Ökumaðurinn var færður á lögreglustöð og bráðabirgðaprófanir gáfu til kynna að hann hafi neytt amfetamíns og kannabisefna. Þá var tekin blóðprufa og send í rannsókn, til að staðfesta fíkniefnaneyslu.

Lögreglan í umdæminu stöðvaði sex ökumenn í vikunni eftir að þeir mældust á of miklum hraða. Sá sem hraðast ók keyrði eftir Vesturlandsveginum á 136 kílómetra hraða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×