Innlent

Smár skjálfti fannst greinilega í Hveragerði

Hveragerði
Hveragerði
Skjálfti sem mældist 1,8 á richterskalanum varð 1,5 km austur af Hrómundartindi rétt fyrir klukkan hálf tíu í kvöld, og fannst hann greinilega í Hveragerði að sögn heimamanna.

Veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir skjálfta af þessu tagi algenga á svæðinu. Fólk geti farið að finna fyrir skjálftum þegar þeir verði sterkari en 1,5 á richter, en þó þurfi að vera töluvert nálægt upptökum til að verða var við svo smáar jarðhræringar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×