Íslensk börn hreyfa sig of lítið 15. ágúst 2011 20:30
Níu ára íslensk börn hreyfa sig of lítið og þrek þeirra fer versnandi ef marka má niðurstöður nýrrar doktorsritgerðar í íþrótta- og lýðheilsufræði. Kristján Þór Magnússon hefur nýlokið við doktorsritgerð sína um holdafar, hreyfingu og þrek 9 ára barna á Íslandi. Niðurstöðurnar byggir hann á mati á ástandi barna frá árinu 2003 og svo rannsókn frá árinu 2008, sem mældi árangur aðgerða sem hvatti börn til hreyfingu. Kristján segir rannsóknina sýna að hreyfing níu ára barna árið 2008 hafi ekki verið eins mikla og árið 2003. Hann segist vera uggandi yfir þróuninni, hvatningaaðgerðir hafi ekki bætt ástandið eins og vonast var eftir. „Þó svo að okkur hafi tekist að auka hreyfingu barnanna á skólatíma, þá varð það ekki til þess að börnin hreyfðu sig meira utan skóla eða um helgar"segir Kristján, en rannsóknarvinnan leiddi einnig í ljós að ákveðnir þættir í fari foreldra hafi áhrif á líkamsástand barnanna. „Það virðist sem svo að þættir í fari feðra tengist frekar þreki barna, en aftur á móti ákveðnir þættir í fari mæðra tengist holdafari barna sem er svolítið áhugaverð pæling." En hvað er hægt að gera til að sporna við þessari þróun? Aðspurður hvað sé hægt að gera til að sporna við þessari þróun segir Kristján: „Ég held að við þurfum öll sem samfélag að passa upp á börnin okkar. Að þau fái nægjanlega hreyfingu, hvort sem það er í skólanum eða utan skóla, og að við eyðum tíma með börnunum okkar og séum góðar fyrirmyndir. Það er svona gamla góða klisjan."
Mest lesið Mohamad vill flytja af landi brott Innlent Mælir gegn notkun á teflonvörum Innlent Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Erlent Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Innlent Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Innlent Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Innlent Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Innlent Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Innlent Fleiri fréttir Hlaupið marki líklega upphaf á aukinni virkni í Kötlu Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Mælir gegn notkun á teflonvörum Taumlaus græðgi, hlaup og umdeild bílakaup „Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Einn slasaður í mótorhjólaslysi við Látrabjarg Íslenskir þjóðbúningar vekja lukku á Ólafsvöku Mohamad vill flytja af landi brott Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Bílakaup verðandi forseta Heilmiklar skemmdir sem mun taka sinn tíma að gera við Engin merki um hlaupóróa lengur Kortleggja gamlar sundlaugabyggingar um allt land Ferðamenn í vanda í ám á Fjallabaksleið og Þórsmörk Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Hringvegurinn opnaður en ökumenn beðnir um að sýna tillitssemi Handteknir við að stela dósum úr gám Þrír drengir handteknir eftir rúðubrot og átök við lögreglu Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði Sjá meira