Innlent

Úrskurðaður í þriggja vikna síbrotagæslu eftir ránstilraun

mynd/365
Maður um tvítugt hefur verið úrskurðaður í þriggja vikna síbrotagæslu að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann var handekinn fyrir tilraun til vopnaðs ráns, en samkvæmt fréttatilkynningu hefur hann oft komið við sögu hjá lögreglu.

Atvikið átti sér stað í verslun í austurhluta Reykjavíkurborgar þegar maðurinn kom inn í verslunina grímuklæddur, vopnaður barefli, og hugðist hafa fé af afreiðslumanni. Ránstilraunin misheppnaðist og hlaut enginn skaða af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×