Innlent

Grjóti kastað í Benz - vitni óskast

Skemmdarverkin voru framin í Hveragerði
Skemmdarverkin voru framin í Hveragerði Mynd Vilhelm
Grjóti var kastað í Mercedes Benz bifreið þar sem hún stóð við Fljótsmörk 6 í Hveragerði aðfaranótt laugardagsins 13. ágúst.  Þá voru spjöll unnin á bifreið, gröfu og fleiru á athafnasvæði gróðrastöðvar við Reykjamörk en þar hefur grafa verið gangsett og notuð til að velta um gömlum bíl sem þar var geymdur.   Lögreglan óskar eftir því að þeir sem búa yfir vitneskju um hver hafi valdið þessu tjóni geri lögreglu viðvart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×