Innlent

Vagnstjórar Strætó sigruðu í ökuleikni

Fremri röð frá vinstri: Kristján Kjartansson, Björg Guðmundsdóttir og Hörður Ingþór Tómasson.
Aftari röð frá vinstri: Sigurjón Guðnason, Elías Viggó Bíldal Guðmundsson, Steindór Steinþórsson, Þórarinn Söebech og Andrés Bergsson.
Fremri röð frá vinstri: Kristján Kjartansson, Björg Guðmundsdóttir og Hörður Ingþór Tómasson. Aftari röð frá vinstri: Sigurjón Guðnason, Elías Viggó Bíldal Guðmundsson, Steindór Steinþórsson, Þórarinn Söebech og Andrés Bergsson.
Strætisvagnabílstjórar Strætó bs. sigruðu á Norðurlandamóti í ökuleikni vagnstjóra, sem haldið var í Stokkhólmi í Svíþjóð nýlega. Í tilkynningu frá Strætó segir að Svíar hafi verið í öðru sæti og Finnar í því þriðja, en þeir sigruðu á þessu móti í fyrra.

Þetta mun vera í áttunda skiptið sem íslenska liðið fer með sigur af hólmi, en mótið var fyrst haldið árið 1976 og hafa íslenskir vagnstjórar tekið þátt frá árinu 1983.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×