Innlent

Líkamstjáning og daður á námsskránni

Erla Hlynsdóttir skrifar
Ástfangið par
Ástfangið par Mynd úr safni
Þeir sem vilja komast í fast samband en reynist það erfitt, hvort sem það er vegna slæmrar reynslu, óframfærni eða af öðrum ástæðum, geta nú farið á sérstakt námskeið hjá Kvíðameðferðarstöðinni fyrir fólk í makaleit.

„Víða erlendis eru til fyrirtæki sem sérhæfa sig í að auðvelda fólki fólki í makaleit að kynnast öðrum en á Íslandi hefur þetta vantað. Þetta námskeið er viðleitni okkar til að veita fólki þau tæki og tól sálfræðinnar sem geta nýst á þessum vettvangi. Suma langar ekkert að vera í sambandi og það er hið besta mál. En þeir sem eiga sér þennan draum heitastan geta nú nýtt sér þekkingu sálfræðinnar á þessu sviði og unnið markvisst að þessu málefni," segir Sóley D. Davíðsdóttir sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni. Með haustinu fer hún, ásamt dr. Gyðu Eyjólfsdóttur, af stað með nýtt námskeið þar sem hugræn atferlismeðferð er nýtt til að gera fólki makaleitina auðveldari.

Hjá Kvíðameðferðarstöðinni eru ýmis námskeið í boði, svo sem fyrir fólk með félagsfælni, svefnvanda eða ofsakvíða. Þær Sóley og Gyða segja að í starfi sínu sem sálfræðingar hafi þær rekist á fólk sem hefur verið einhleypt lengi, langar að finna sér maka en gengur erfiðlega að komast í gott samband.

Á námskeiðinu verður meðal annars farið í samskipti kynjanna, öflugar samskiptaleiðir, hvar og hvernig má kynnast öðrum, áhrif hugarfars, viðhorfa og sjálfsmyndar á makaleit. Þá verður einnig farið yfir líkamstjáningu, daður og kynlíf, svo eitthvað sé nefnt.

Hugræn atferlismeðferð er viðurkennt meðferðarform sem meðal annars getur hjálpað fólki að breyta líðan sinni og hafa áhrif á hugarfar og hegðun. Gyða segir að markmiðið með námskeiðinu sé að fólk verði meira framfærið, sáttara við sig og betur í stakk búið til að vinna markvisst að makaleitinni. Þá tekur Sóley fram að árangur af námskeiðum sem stöðin býður upp á sé mældur, og það sama verði gert með þetta.

Sóley og Gyða segjast ekki vita til þess að boðið hafi verið upp á viðlíka námskeið hér á landi á vegum sálfræðinga. Þær benda á að á þessu sviði sem og öðrum, séu til ýmsar áhrifaríkar aðferðir sem auðvelda fólki að ná markmiðum sínum.

Sjá vefsíðu Kvíðameðferðarstöðvarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×