Innlent

Hundur sem hvarf í innbroti kominn aftur heim

Myndir Raffaellu af Snúllu töpuðust með tölvunum hennar, en hér má sjá túlkun hennar á atburðum helgarinnar.
Myndir Raffaellu af Snúllu töpuðust með tölvunum hennar, en hér má sjá túlkun hennar á atburðum helgarinnar. Mynd/Raffaella
Chihuahua hundurinn Snúlla, sem grunur lék á að hefði verið stolið þegar brotist var inn í íbúð í Norðurmýri aðfararnótt sunnudags, er kominn í leitirnar. Þýfið er þó enn ófundið.

„Ég fór bara í smátíma út og kom aftur" segir Sharon Raffaella Sigurðardóttir, stúlkan sem lítur eftir Snúllu í sumar, en brotist var inn á heimili hennar einhverntíman á þeim þremur klukkutímum sem hún var að heiman síðastliðið laugardagskvöld.

Rafaela segir þjófana hafa komið inn um svefnherbergisgluggann en hún telur líklegast að þeir hafi farið út um útidyrnar og þannig hafi Snúlla sloppið út.

„Snúlla er í pössun hjá mér, mamma hennar er úti á landi og Snúlla er búin að vera hjá mér í allt sumar. Ég ber ábyrgð á að hún komist aftur heim til mömmu sinnar þannig að þetta var algjör martröð." segir Raffaella, en hún fann Snúllu loks á vappi nálægt Kennaraháskólanum.

„Hún var haltrandi þegar ég sá hana." segir Raffaella sem eyddi nóttinni í að leita að Snúllu. „Ég vona að þeir hafi ekki meitt hana. Þetta var alls ekki gaman."

Tveimur mac-tölvum var stolið af Raffaellu, auk tónhlöðu, tveggja flakkara og stafræns teikniborðs, en Raffaella er hönnuður og tapaði stórum hluta vinnu sinnar í innbrotinu. Hún heldur enn í vonina að þjófunum snúist hugur og skili þýfinu og hún ítrekar að hún vilji engan mann kæra. „Þetta er vinnan mín. Ég vil bara fá gögnin mín aftur og ég er tilbúin að borga fundarlaun. Ég vil ekki kæra."



Tengdar fréttir

Grunur um að hundi hafi verið stolið í innbroti

Brotist var inn í íbúð í fjölbýlishúsi í Norðurmýrinni í Reykjavík laust eftir miðnætti í nótt. Innbrotsþjófarnir fóru inn um svefnherbergisglugga og höfðu á brott með sér tvær fartölvur. Húsráðendur sakna einnig chihuahua-hunds, en ekki er ljóst hvort að hinir óprúttnu aðilar hafi tekið hann með sér eða hann hreinlega sloppið út. Málið er í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×