Innlent

Ágreiningur um atvinnuuppbyggingu veldur töfum

Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ segir ágreining ráðherra um atvinnuuppbyggingu á Reykjanesi tefja fjárfestingu á svæðinu. Hann óttast að einkasjúkrahús á Reykjanesi verið aldrei að veruleika.

Tólf prósent atvinnuleysi er nú í Reykjanesbæ og segir bæjarstjórinn, Árni Sigfússon, að mörg verkefni séu í gangi en erfiðlega gangi að koma þeim af stað vegna tafa og áfalla. Honum finnst stjórnvöld ekki veita svæðinu nægilegan stuðning.

„Mér finnst öll þau verkefni sem við erum að vinna, þau mæta of oft andstöðu, hluti ríkisstjórnarinnar er andstæður, við höfum átt mjög gott samstarf við iðnaðarráðherra um verkefni en um leið og hún opnar munninn þá finnst mér tveir þrír aðrir ráðherrar standa upp og tala gegn verkum þannig að  þegar maður ætlast til þess að það sé verið að setja kraft í verkinn þá sé betra að nefna þau ekki því að það kemur slík andstaða.“

Þessi ágreiningur innan ríkisstjórnarinnar tefji því fyrir og því sé fjárfesting ekki að skila sér sem skyldi. Til dæmis séu framkvæmdir við einkasjúkrahús á gamla varnarsvæðinu í mikilli hættu.

„Það eru þrjú ár orðin síðan að menn óskuðu eftir því að fá að nýta ónotaðar skurðstofur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til þess að koma sér af stað í þetta verkefni,  að flytja hér inn sjúklinga og fara í liðskiptaaðgerðir og fitusogsaðgerðir og það var bara nei. Síðan er þriðji ráðherran nú í röðinni sem að segir já og opnar fyrir þetta en tíminn er orðinn mjög langur og biðlund þeirra sem hafa verið að standa að þessu er á þrotum þannig ég óttast mjög að það sem átti að koma síðan, byggja upp stórt verkefni að Ásbrú að þetta sé bara brotið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×