Innlent

Hjón unnu 26 milljónir: Stórt brúðkaupsafmæli á næstunni

Þetta er í fyrsta sinn sem hjónin vinna þann stóra í Lottóinu
Þetta er í fyrsta sinn sem hjónin vinna þann stóra í Lottóinu Mynd úr safni
Það voru lukkuleg hjón sem komu til Getspár í morgun með vinningsmiðann góða frá síðustu helgi.  Hjónin sem eiga 6 uppkomin börn keyptu miðann í Happahúsinu Kringlunni og höfðu svo sannarlega heppnina með sér í það skiptið þar sem þau voru þau einu sem voru með allar 5 tölurnar réttar. 

Þau áttu nokkra miða og fengu útprentun á réttum vinningstölum og fóru sjálf yfir miðana.  Það var síðasta röðin á síðasta miðanum sem gaf þeim rúmlega 26 milljónir í vinning.

Miðinn var 10 raða sjálfvalsmiði með Jóker og er þetta í fyrsta sinn sem þau vinna þann stóra í Lottóinu en þau spila alltaf með bæði í Lottó og Víkingalottó.

Hjónin, sem eiga stórt brúðkaupsafmæli á næstunni, ætla að gera vel við sig í í tilefni afmælisins en sögðu annars að Lottóvinningurinn væri frábær varasjóður við eftirlaunin þegar þar að kæmi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×