Innlent

Katrín skartaði sínu fegursta í brúðkaupinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hún var troðfull Kópavogskirkjan klukkan sjö í gær þegar Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Bjarni Bjarnason rithöfundur voru gefin saman í heilagt hjónaband. Það er mál manna sem voru viðstaddir að andrúmsloftið hafi verið ákaflega kærleiksríkt í kirkjunni.

Á meðal brúðkaupsgesta voru Össur Skarphéðinsson, samráðherra Katrínar, Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, þingmennirnir Þórunn Sveinbjarnardóttir og Róbert Marshall, auk fjölmiðlakvennanna, Brynju Þorgeirsdóttur, Mörtu Maríu og Ellýjar Ármanns.

Skartaði sínu fegursta

Brúðurin skartaði sínu fegursta, var með hárið tekið aftur, klædd í fallegan einlitan ljósgráan kjól. Faðir hennar og sonur, sem eiga það sameiginlegt að heita Júlíus, leiddu hana inn kirkjugólfið. Sonur brúðgumans var einnig viðstaddur brúðkaupið og sat við hlið hans í kirkjunni.

Gissur Páll Gissurarson tenór söng við athöfnina, þar á meðal eitt frumsamið lag sem heitir Sólarlagið og er eftir Tómas Guðna Eggertsson, en hann var organisti við athöfnina. Textann við lagið skrifaði Sigurbjörg Þrastardóttir. Róbert Marshall, félagi Katrínar úr þingflokki Samfylkingarinnar, söng og spilaði á gítar þegar nýgift brúðhjónin ásamt sonum þeirra tveimur gengu út úr kirkjunni. Róbert söng „Lífið er yndislegt" og gestir tóku undir með honum.

Brúðhjónin gáfu sér tíma í anddyri kirkjunnar til þess að taka á móti heillaóskum kirkjugesta með því að heilsa öllum með faðmlagi áður en þau yfirgáfu kikjuna.

Salurinn skreyttur með páskaeggjum

Eftir athöfnina skunduðu gestir beint í Glersalinn á Salarvegi í Kópavogi þar sem veislan var haldin. Veislusalurinn og borðin voru skreytt með grænum smákökum, svokölluðum „cupcakes" og páskaeggjum.

Gestum var boðið upp á ítalska smárétti, vínveitingar, tertur og kaffi. Gestir skemmtu brúðhjónunum og hver öðrum með skemmtilegum ræðum og æskuvinkonur Kötu sýndu myndband frá því úr gæsapartýinu hennar. Loks mætti plötusnúður á svæðið og sá til þess að brúðhjón, synir þeirra og gestir dönsuðu langt fram á rauða nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×