Innlent

Rammi kærir rækjumálið til Hæstaréttar

Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra.
Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra.

Útgerðarfyrirtækið Rammi á Siglufirði hefur ákveðið að kæra niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í gær til Hæstaréttar.

Rammi höfðaði mál gegn íslenska ríkinu fyrir að hafa gefið úthafsrækjuveiðar frjálsar, og þar með gert verðmæti útvegsfyrirtækja í rækjukvótum að engu. Héraðsdómur vísaði málinu frá á grundvelli þess að krafan í málinu hafi verið of almenn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×