FME hafði ekki heimild til að rannsaka brotin segir verjandi Sigurjóns Þorbjörn Þórðarson skrifar 19. janúar 2011 12:01 Sigurjón Þ. Árnason var á föstudag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. janúar.
Verjandi Sigurjóns Þ. Árnasonar telur að rannsókn sérstaks saksóknara á meintum brotum Sigurjóns sé ekki lögleg því Fjármálaeftirlitinu hafi ekki verið heimilt að rannsaka málið og vísar hann meðal annars til laga um rannsóknarnefnd Alþingis til að rökstyðja það, en rannsóknin grundvallast á kæru frá Fjármálaeftirlitinu. Hæstiréttur fjallaði í byrjun vikurnar um gæsluvarðhaldskröfu yfir Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald til 25. janúar. Meirihluti réttarins staðfesti kröfuna í gær en einn dómari, Jón Steinar Gunnlaugsson, skilaði sératkvæði og taldi að skilyrði laga um meðferð sakamála væru ekki fyrir hendi. Þetta er í samræmi við fyrri sératkvæði því Jón Steinar skilaði einnig sératkvæði þegar Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhald yfir Hreiðar Má Sigurðssyni og Magnúsi Guðmundssyni hjá Kaupþingi síðastliðið vor, en dómarinn vísaði m.a til þess að í stjórnarskránni væru gerðar strangar kröfur til þess að hneppa mætti í gæsluvarðhald menn sem grunaðir væru um refsiverða háttsemi og að ekki hefði verið sýnt fram að á að þeir myndu torvelda rannsókn málsins.Geti spillt fyrir rannsókn Í gæsluvarðhaldskröfunni í Landsbankamálinu sem fréttastofa hefur undir höndum og fjallað hefur um í fréttaskýringum að undanförnu kemur fram að sérstakur saksóknari telji að það gæti spillt verulega fyrir rannsókn málsins ef Sigurjón væri í þeirri aðstöðu að geta haft áhrif á framburð annarra sakborninga og vitna í málinu, áður en fyrstu skýrslur væru teknar af þeim í þágu rannsóknarinnar. FME að rannsaka eigin vanrækslu Sigurður G. Guðjónsson, verjandi Sigurjóns, telur að Fjármálaeftirlitið hafi ekki mátt rannsaka meint brot sem varða markaðsmisnotkun á grundvelli laga um rannsóknarnefnd Alþingis. Ítarlega er fjallað um hina meintu markaðsmisnotkun í 4. bindi skýrslu rannsóknarnefndarinnar, en nefndinni bar samkvæmt 14. gr. laga um nefndina að vísa málum vegna meintrar refsiverðar háttsemi til ríkissaksóknara. Nefndin vísaði mörgum slíkum málum til ríkissaksóknara, þ.á.m máli vegna meintrar markaðsmisnotkunar Landsbankans. Rannsókn sérstaks saksóknara nú grundvallast á kæru frá FME frá 19. október 2010, en Sigurður telur að FME hafi ekki verið ætlað að hafa neina aðkomu að rannsóknum á aðdraganda og orsökum falls bankanna enda orsakirnar að mörgu leyti að finna í slælegu eftirliti þess. Með þessu hafi FME í raun verið að rannsaka eigið athafnaleysi og gat því aldrei verið hinn hlutlausi rannsóknaraðili. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu Innlent Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Innlent Sagðir hafa lagt á ráðin um skemmdarverkin á Nord Stream í ölæði Erlent Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Innlent Gena Rowlands er látin Erlent Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Innlent Fleiri fréttir Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Bótagreiðslur til Íslendinga almennt hærri Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Sjá meira