Innlent

Dagbladet: Einar Ingi í hópi handtekinna

Samkvæmt frétt í norska blaðinu Dagbladet er Einar Ingi Marteinsson, oft auknefndur Búmm, í hópi þeirra félaga MC Iceland, sem nú eru í haldi lögreglunnar á Gardermoen flugvelli við Osló. Einar Ingi er forsprakki MC Iceland.

Jafnframt segir Dagbladet að Einar Ingi hafa fengið norska stjörnulögfræðinginn Morten Furuholmen til liðs við sig. Sá lögmaður hefur áður varið Leif Ivar Kristiansen formann Hells Angels í Noregi.

Nokkrir meðlimir MC Iceland eru enn í haldi lögreglunnar á Gardermoen en ekki liggur fyrir hvort þeim verður hleypt inn í Noreg.

För MC Iceland félaga til Noregs var í því skyni að verða fullgildir meðlimir Hells Angels.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×