Innlent

Mottur til sýnis í Kringlunni

Mikil gróska er á efri vörum íslenskra karla um þessar mundir en eins og flestir vita er Mottumars hafinn annað árið í röð.

„Um helgina snyrti Nonni Quest mottuna á vel á þriðja tug karla en afraksturinn má líta augum í portrettmyndasyrpu eftir Einar Smárason ljósmyndara sem hafa nú verið hengdar upp á göngum Kringlunnar," segir í tilkynningu frá átakinu. „Okkur langaði að leggja átakinu lið en þetta er gríðarlega mikilvægt málefni," segir Guðrún Elísabet Ómarsdóttir (G.Beta) á KRISTU/Quest en hún og Nonni Quest sáu um skipulagningu og framkvæmd á verkefninuHægt verður að kaupa myndirnar til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands, bæði sýningarmyndirnar sjálfar og minni útgáfur.

Meðal mottukappa sem Kringlugestir geta nú virt fyrir sér eru tónlistarmennirnir Erpur Eyvindarson, Sigurður Guðmundsson úr Hjálmum, KK og Pétur Örn Guðmundsson, auk fréttamannanna Hauks Hólms og Símonar Birgissonar.

Vefurinn www.karlmennogkrabbamein.is hefur flogið af stað, og nú hafa tæplega 1000 einstaklingar og næstum 200 lið skráð sig til leiks og keppnin harðnar dag frá degi! Mottumarsvefurinn sjálfur býður nú upp á fleiri möguleika en áður en nú er t.d. hægt að setja inn fleiri myndir af hverjum keppanda og skrá sig eftir staðsetningu og efna til karlmennskulegrar samkeppni við sveitunga sína.

Krabbameinsfélagið hvetur alla karla til að taka þátt í verkefninu og huga að heilsu sinni með því að iðka heilbrigðan lífsstíl og kynna sér helstu einkenni krabbameins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×