Innlent

Löggan stoppaði 160 ökumenn í nótt

Um hundrað og sextíu ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld og nótt í  umferðareftirliti lögreglunnar. Sjö ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið eða undir áhrifum fíkniefna og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Fjórir til viðbótar voru handteknir og fluttir á lögreglustöð en þeir voru farþegar í bíl ökumanns sem var undir áhrifum fíknefna. Líkt og ökumaðurinn voru þeir allir í annarlegu ástandi en fíkniefni fundust í bílnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×