Innlent

Stéttarfélög vilja fund með Isavia - óánægja á meðal starfsmanna

Frá Leifsstöð.
Frá Leifsstöð.
Formenn þriggja stéttarfélaga innan vébanda BSRB ætla að fara fram á fund með forstjóra og stjórnarformanni Isavia, ásamt með forsvarsmönnum BSRB, vegna dóms vegna kynferðislegrar áreitni sem upp kom hjá fyrirtækinu á dögunum. Félögin þrjú, Félag flugmálastarfsmanna ríkisins, Félag íslenskra flugumferðarstjóra og SFR - Stéttarfélag í almannaþjónustu, héldu sameiginlegan fund um málið í síðustu viku og kom þar fram óánægja vegna þessa máls, sem og annarra hjá fyrirtækinu, að því er fram kemur í frétt á heimasíðu BSRB.

Fundurinn var haldinn á miðvikudaginn var og þar mættu félagsmenn sem starfa hjá Isavia. „Mikil ólga kom fram meðal fundarmanna bæði vegna þessa máls og einnig vegna annarra mála sem tengjast starfsmanna- og mannauðsmálum hjá fyrirtækinu,“ segir í samþykkt fundarins.  Þá kröfðust fundarmenn úrbóta svo að starfsmönnum geti liðið vel með sín störf og verið stoltir af sínum vinnustað. „Eins og staðan er nú vantar töluvert upp á það. Farið verður á leit við forsvarsmenn fyrirtækisins að halda slíkan fund á næstu dögum.“


Tengdar fréttir

Yfirmaður hjá ISAVIA í leyfi vegna kynferðislegrar áreitni

Starfsmaður ISAVIA sem var fundinn sekur um kynferðislega áreitni gagnvart samstarfskonu sinni er kominn í leyfi. Samkvæmt upplýsingum frá ISAVIA var um að ræða sameiginlega ákvörðun stjórnenda fyrirtækisins og hans.

Isavia: Niðurstaða dómsins kemur verulega á óvart

Forsvarsmenn Isavia segja að niðurstaða Héraðsdóms Reykjaness, um að fyrirtækið greiði starfsmanni 1,8 milljónir vegna kynferðislegrar áreitni af hálfu starfsmanns, komi verulega á óvart. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að farið verður yfir dóminn og afleiðingar hans metnar.

Isavia-dómurinn gefur „fordæmi í jafnréttismálum“

„Dómurinn hefur mikið fordæmisgildi þar sem tekin er afstaða til þess hvort ákveðið athæfi hafi verið kynferðisleg áreitni á vinnustað og hvort atvinnu­rekandi hafi brugðist við með réttum hætti í kjölfar atviksins samkvæmt skilgreiningum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Málið hefur þar af leiðandi mikla þýðingu fyrir allt launafólk enda viðurkennd rík ábyrgð atvinnurekanda í slíkum málum," segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB, í grein þar sem hún reifar mikilvægi dóms í máli konu sem starfaði hjá Isavia og varð fyrir kynferðislegri áreitni af hálfu yfirmanns síns.

Formaður UMFN ætti að segja af sér

ormaður UMFÍ segir formann Ungmennafélags Njarðvíkur skyldugan til að segja af sér eftir að dómur taldi sannað að hann hefði áreitt konu kynferðislega. Maðurinn er í leyfi frá starfi sínu hjá Isavia þar til annað verður ákveðið.

Isavia málið: Tímamótadómur að mati lögfræðings BSRB

Tímamótadómur féll í Héraðsdómi Reykjaness í dag þegar ríkisfyrirtækið Ísavía var dæmt til að greiða konu miskabætur vegna kynferðislegrar áreitni af hálfu hátt setts yfirmanns. Lögmaður BSRB segir málið fordæmisgefandi. Yfirmaðurinn er enn við störf.

Isavia gert að greiða bætur fyrir kynferðislega áreitni starfsmanns

„Dómurinn var að falla í dag,“ svarar Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia, þegar fréttamaður spurði hana hvort það væri eðlilegt að starfsmaður, sem beitti undirmanns sinn kynferðislegri áreitni, væri enn við störf hjá fyrirtækinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×