Innlent

Nauðgun kærð á Selfossi - þrír grunaðir og eitt vitni

Lögreglan á Selfossi sleppti mönnnunum þremur eftir yfirheyrslu. Einn til viðbótar var yfirheyrður sem vitni
Lögreglan á Selfossi sleppti mönnnunum þremur eftir yfirheyrslu. Einn til viðbótar var yfirheyrður sem vitni
Stúlka kom á lögreglustöðina á Selfossi og kærði nauðgun á sunnudagsmorguninn. Brotið mun hafa átt sér stað á hóteli á Selfossi skömmu áður.

Þrír menn voru handteknir og fengu réttarstöðu grunaðra manna. Þeim var svo sleppt á sunnudagskvöldinu eftir yfirheyrslur og sýnatökur. Einn til viðbótar var yfirheyrður með réttarstöðu vitnis. Sýni verða nú send til rannsóknar. Ítarleg tæknirannsókn fór fram í húsnæði því sem er meintur brotavettvangur.

Málið er til frekari rannsóknar hjá lögreglunni Selfossi, sem nýtur aðstoðar Tæknideildar LRH við hana. Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×