Innlent

Þrír í haldi á Selfossi grunaðir um kynferðisbrot

Lögreglan á Selfossi handtók í gær þrjá karlmenn, eftir að henni barst kæra um kynferðisbrotamál í gærmorgun. Mennirnir munu enn vera í vörslu lögreglunnar, en yfirheyrslur stóðu fram á nótt.

Lögregla verst allra nánari fregna af rannsókninni á þessu stigi og gefur ekki upp, í hverju  brotið er fólgið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×