Innlent

Gönguskíðamenn komnir til byggða

MYND/Vilhelm
Björgunarsveitir Landsbjargar komu laust fyrir klukkan sex í morgun til byggða með þrjá skíðagöngumenn, sem þeir björguðu í slæmu veðri af Öræfajökli í nótt. Mennirnir eru heilir á húfi enda voru þeir mjög vel búnir. Þeir óskuðu eftir aðstoð í gærkvöldi og gátu gefið upp staðsetningu. Björgunarsveitarmenn komu að þeim klukkan eitt í nótt. Að sögn björgunarsveitarmanna var afleitt veður á jöklinum í nótt og sóttist ferðin ofan af jöklinum hægt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×