Skólameistari íhugar málaferli vegna auglýsinga Office 1 12. janúar 2011 17:45 Mynd/www.n4.is
Formaður bæjarráðs Akureyrar og tveir skólameistarar í bæjarfélaginu voru notaðir í heimildarleysi í auglýsingar Office 1 á Akureyri fyrir jól. Skólameistari MA skoðar nú lagalega stöðu sína. Markaðsstjóri Office 1 segir að um húmor hafi verið að ræða. Fjallað er um málið á vef sjónvarpsstöðvarinnar N4 á Akureyri. Í auglýsingunum birtust myndir af Oddi Helga Halldórssyni, formanni bæjarráðs, Jóni Má Héðinssyni, skólameistara MA og Hjalta Jóni Sveinssyni, skólameistara VMA. Þar var auk þess haft eftir þeim að þeir ætluðu að spara í ár. „Ég er nú að kanna hvaða lagalegu stöðu ég hef við þessar kringumstæður. Það er alvarlegt að nota embættið með þessum hætti. Á meðan við könnum stöðuna munum við ekki eiga viðskipti við umrætt fyrirtæki," er haft eftir skólameistaranum Jóni Má á vef N4. Þar segir Oddur Helgi að um dónaskap væri að ræða. Erling Ingason, markaðsstjóra Office 1, segir aftur á móti: „Þetta var okkar húmor og fólk verður að geta tekið því. Þessir menn eru í opinberum stöðum og þurfa að spara í ár."
Mest lesið Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Innlent Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Innlent „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Innlent Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Innlent Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Innlent Dóttir Thaksin verður yngsti forsætisráðherra Taílands Erlent Landtökumenn á Vesturbakkanum kveiktu í húsum og bifreiðum Erlent Landsvirkjun gerir 725 milljón króna tilboð í Toppstöðina Innlent Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Fleiri fréttir Landsvirkjun gerir 725 milljón króna tilboð í Toppstöðina Skjálfti í Bárðarbunguöskjunni Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Sjá meira