Innlent

BSRB kynnir viðsemjendum kröfur sínar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Elín Björg Jónsdóttir er formaður BSRB.
Elín Björg Jónsdóttir er formaður BSRB.
BSRB kynnir samninganefndum ríkisisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga kröfur BSRB í kjarasamningum á fundum í BSRB húsinu í dag. Þar verður farið yfir þau sameiginlegu verkefni í kjarasamningum sem bandalaginu hafa verið falin af aðildarfélögunum.

Í frétt á vef BSRB segir að samninganefndunum verði afhent afrit af yfirlýsingu um aðkomu BSRB að sameiginlegum viðræðum aðila vinnumarkaðarins, en Ríkissáttasemjari hefur þegar fengið hana í hendur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×