„Við sluppum vel í þetta sinn“ 12. janúar 2011 19:44 „
Við sluppum vel í þetta sinn" segir móðir fjórtán mánaða stúlku sem hlaut annars stigs bruna á líkamanum þegar hún hellti yfir sig sjóðandi vatni um síðustu helgi. Stúlkan dvelur enn á Barnaspítala Hringsins. Rakel Dís er heldur hávaxin miðað við 14 mánaða aldur og sterkleg að sjá. Því var kannski ekki erfitt fyrir hana að teygja sig í pottinn af eldavélinni síðastliðinn laugardag. „Við vorum að sjóða egg og hún skvetti yfir sig sjóðandi vatni," segir Helga Guðrún Ásgeirsdóttir, móðir Rakelar Dísar. Rakel var keyrð í bæinn en hún er búsett í Þorlákshöfn. Þá var búið að kæla hana með köldu vatni og setja á hana brunagel. Betur fór en áhorfðist í fyrstu en hún hlaut engu að síður annars stigs bruna og brann illa á bringunni og öðrum handleggnum. Helga telur að Rakel muni ekki hljóta varanleg ör. „Lýtalæknirinn telur að hún eigi ekki eftir að fá ör en það er erfitt að segja til um það. Það mun taka húðina góðan tíma að jafna sig. Hann talaði að um það gæti tekið sex mánuði þar til húðin fer að líta eðlilega út." Herdís Storgaard, hjá forvarnarhúsi Sjóvár, segir slys af þessu tagi vera algengust hjá börnum milli eins og tveggja árs. Um það bil 17 börn eru lögð inn á ári vegna bruna og í helmings tilvika eru þeir af völdum vatns. Hún ráðleggur fólki að nota innri hellurnar á eldavélinni eða fjárfesta í grind sem hægt er að setja fyrir framan pottana.
Mest lesið Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Innlent Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Innlent „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Innlent Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Innlent Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Innlent Dóttir Thaksin verður yngsti forsætisráðherra Taílands Erlent Landtökumenn á Vesturbakkanum kveiktu í húsum og bifreiðum Erlent Landsvirkjun gerir 725 milljón króna tilboð í Toppstöðina Innlent Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Fleiri fréttir Landsvirkjun gerir 725 milljón króna tilboð í Toppstöðina Skjálfti í Bárðarbunguöskjunni Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Sjá meira