Innlent

Sinubruninn: Rannsaka hvort eldurinn hafi kviknað á nokkrum stöðum í einu

Fjöldi slökkviliðs- og lögreglumanna barðist fram á nótt við gríðar mikinn sinueld, sem kviknaði í Vatnsmýrinni, skammt frá húsi Íslenskrar erfðagreiningar rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi.

Beitt var þremur dælubílum frá slökkviliðinu og öflugum dælubíl frá slökkviliðinu á Reykjavíkurflugvelli, en eldurinn hafði dreifst á augabragði um stórt svæði þegar slökkvilið kom á vettvang.

Mikinn reyk lagði yfir stúdentagarðana og var íbúum ráðlagt að loka öllum gluggum. Nokkrum bílum var bjargað frá eldinum á því svæði og voru mannvirki ekki í hættu. Það tók slökkviliðið röskar tvær klukkustundir að ráða niðurlögum eldsins.

Ekki er vitað til að neinn hafi leitað læknis vegna reykeitrunar, en megn reykjarlykt barst inn í margar íbúðir í stúdentagörðunum. Eldsupptök eru með öllu óljós, en meðal annars er verið að kanna hvort eldurinn hafi kviknað á nokkrum stöðum nær samtímis.

Sé smellt á myndasafnið hér að neðan má sjá myndir sem Vigfús Björnsson, lesandi Vísis, smellti af á vettvangi.

Myndatökumaður Stöðvar 2 var einnig á vettvangi og sjá má myndkskeiðið með því að smella á tengilinn.





Mynd/ Vigfús Björnsson
Mynd/ Vigfús Björnsson
Mynd/ Vigfús Björnsson
Mynd/ Vigfús Björnsson
Mynd/ Vigfús Björnsson
Mynd/ Vigfús Björnsson
Mynd/ Vigfús Björnsson
Mynd/ Vigfús Björnsson
Mynd/ Vigfús Björnsson
Mynd/ Vigfús Björnsson
Mynd/ Vigfús Björnsson
Mynd/ Vigfús Björnsson
Mynd/ Vigfús Björnsson
Mynd/ Vigfús Björnsson
Mynd/ Vigfús Björnsson

Tengdar fréttir

Vatnsmýrin logar

Mjög mikill sinubruni er nú í Vatnsmýrinni í Reykjavík, nálægt Norræna húsinu. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru „fjölmargir" slökkvibílar á vettvangi.

„Íbúðin fylltist bara af reyk“

„Ég rétt náði að færa bílinn minn, hann stóð þarna einn í eldinum," segir íbúi á stúdentagörðunum við Eggertsgötu. Hann segist hafa fyrst orðið var við eldinn í Vatnsmýrinni þegar nágranni sinn dinglaði á bjölluna hjá sér og tilkynnti að það væri kviknað í túninu fyrir framan húsið.

Búið að slökkva eldinn

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og á flugvellinum í Reykjavík hafa slökkt eldinn að mestu sem logaði í Vatnsmýri í kvöld. Enn logar í glæðum á svæðinu. Mikill sinubruni kviknaði um hálf tólf í kvöld skammt frá Öskju og barst með vindi í átt að Eggertsgötu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×