Innlent

Bílvelta við Brúará: Farþegi kastaðist út úr bílnum

Ökmaður bifreiðar missti stjórn á bíl sínum á Biskupstungnabraut við Brúará um hálf þrjúleytið í dag. Sex voru í bílnum og kastaðist einn farþegi út um afturrúðu bílsins og hlaut skurð á höfði.

Hann er ekki talinn alvarlega slasaður og hlaut aðhlynningu á heilsugæslustöðinni í Laugarási ásamt öðrum farþegum bifreiðarinnar, sem voru allir með minniháttar áverka.

Slysið er í rannsókn og segir varðstjóri hjá lögreglunni á Selfossi hreint ótrúlegt að farþeginn hafi sloppið án alvarlegra meiðsla þegar hann kastaðist út úr bifreiðinni. Hálka var á svæðinu í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×