Innlent

Tveir snarpir jarðskjálftar í Krísuvík

MYND/365
Tveir jarðskjálftar, annar upp á 2,8 á Richter og hinn upp á 2,6 urðu norðaustur af Krísuvík upp úr klukkan tvö í nótt og í kjölfarið fylgdu veikari skjálftar.

Skjálftarnir fundust meðal annars í Hafnarfirði og vakthafandi veðurfræðingar á Veðurstofunni urðu þeirra varir.  Upptökin voru á þekktu skjálftasvæði í um það bil sjö kílómetra fjarlægð frá Krísuvík.

Óróa gætti líka í Grímsvötnum í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×