Innlent

Ók inn í nautgripahjörð, tveir gripir drápust

Ungur ökumaður slapp lítið meiddur þegar hann ók inn í nautgripahjörð á Eyjafjarðarbraut Vestri um klukkan tvö í nótt. Einn nautgripur drapst og annar var svo mikið meiddur að dýralæknir aflífaði hann á staðnum.

Ökumaðurinn telur sig hafa ekið á að minnsta kosti þrjá gripi og eru bændur að kanna hjörðina nánar. Gripirnir sluppu út úr girðingu og fóru langt frá heimkynnum sínum.

Ökumaðurinn fór á sjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar en bíllinn er stór skemmdur, ef ekki ónýtur, að sögn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×