Innlent

Hjólað í vinnuna - skráning hafin

Mynd úr safni
Árlega átakið „Hjólað í vinnuna" fer fram dagana 4. til 24. maí og hefur verið opnað fyrir skráningu. Fyrirtæki geta því byrjað að setja saman lið og skrá þau til leiks.

Markmið verkefnisins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, hagkvæmum og umhverfisvænum samgöngumáta.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið að þessu verkefni frá árinu 2003 og fjölgar þátttakendum ár frá ári.

Fyrsta árið tóku þátt 45 vinnustaðir en í fyrra voru þeir 551.

Nánari upplýsingar um verkefnið og skráningu er að finna á heimasíðunni www.hjoladivinnuna.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×