Innlent

Þorskur í hjarðeldi vex þrefalt hraðar

Hjarðeldið reyndist koma betur út en að veiða villtan þorsk og ala hann í sjókvíum og mun betur en að nota eldisseiði sem klakin eru út í eldisstöð og flutt í sjókvíar.fréttablaðið/vilhelm
Hjarðeldið reyndist koma betur út en að veiða villtan þorsk og ala hann í sjókvíum og mun betur en að nota eldisseiði sem klakin eru út í eldisstöð og flutt í sjókvíar.fréttablaðið/vilhelm
Tilraunir með hjarðeldi á þorski í Arnarfirði benda til að slíkt eldi sé arðbært. Niðurstöðurnar hafa vakið athygli erlendis og meðal annars fengið umfjöllun í fréttadálki hins virta vísindatímarits Nature.

Nýlega birtist grein um arðsemi hjarðeldis á þorski í alþjóðlega tímaritinu Marine Policy eftir Jón Eðvald Halldórsson, Björn Björnsson og Stefán B. Gunnlaugsson en greinin er byggð á meistaraprófsritgerð Jóns við Háskólann á Akureyri þar sem Björn, sérfræðingur í eldi sjávardýra á Hafrannsóknastofnuninni, var leiðbeinandi.

Í greininni er sagt frá tilraunum með hjarðeldi sem fóru fram í Arnarfirði á árunum 2005 og 2006 á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar. Þar var komið upp fjórum fóðrunarstöðvum miðsvæðis í firðinum, tveimur nærri norðurströndinni og tveimur nærri suðurströndinni. Þangað var farið tvisvar til þrisvar í viku með frosna loðnu í netpoka en þorskarnir söfnuðust að fóðrunarstöðvunum og rifu í sig fóðrið út um netmöskvana. Vaxtarhraði hjarðeldisfiskanna um það bil þrefaldaðist miðað við villta fiska annars staðar í firðinum.

Í greininni er borinn saman sá möguleiki fyrir útgerðarfélag með 200 tonna þorskkvóta að í stað þess að veiða horaðan og smáan grunnslóðarfisk eigi að fóðra fiskinn í hjarðeldi eins og gert var í Arnarfirði og þannig tvöfalda meðalþyngd hans áður en veiðar færu fram. Miðað við gefnar forsendur er gert ráð fyrir að þá sé hægt að slátra um 360 tonnum af stórum fiski og um það bil tvöfalda aflaverðmætið.

Arðsemisútreikningar benda til að árlegur hagnaður yrði um ellefu milljónir króna af hinum hefðbundnu fiskveiðum en 24 milljónir króna af hjarðeldinu. Hjarðeldið kom einnig betur út miðað við að veiða villtan þorsk sem alinn er til slátrunar í sjókvíum og mun betur en þegar notuð eru eldisseiði sem klakin eru út í eldisstöð og síðar flutt út í sjókvíar.

Hjarðeldi er enn á tilraunastigi og ýmsar rannsóknir og þróunarstarf þarf að fara fram áður en hægt er að hefja slíka starfsemi og setja um hana almennan lagaramma, segja þeir sem staðið hafa að rannsóknunum.

svavar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×