Innlent

Vaðlaheiðargöng að komast á koppinn

Samkomulag um framkvæmd fjármögnunar Vaðlaheiðarganga var undirritað á Akureyri síðdegis í gær.

Samkomulagið er á milli fjármálaráðuneytisins og Vaðlaheiðarganga hf. sem Vegagerðin á 51 prósents hlut í og Greið leið ehf. 49 prósenta hlut.

Útboðsgögn vegna byggingar Vaðlaheiðarganga verða afhent á morgun og reiknað er með að tilboð verði opnuð 4. október nk.

Allir sex sem óskuðu eftir að fá að gera tilboð í Vaðlaheiðargöng reyndust til þess hæfir, því geta þessir boðið í verkið, að því er segir á vefsíðu stjórnarráðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×