Efnahagsbrotadeild sameinast embætti sérstaks sakskóknara 8. ágúst 2011 09:37 Ólafur Hauksson er sérstakur saksóknari
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og embætti sérstaks saksóknara sameinast þann 1. september, samkvæmt lögum nr. 82/2011 sem þá taka gildi. Við gildistöku laganna flyst rannsókn mála er undir efnahagsbrotadeild heyra og ákæruvald og þar með sókn þeirra mála sem þegar sæta ákærumeðferð fyrir dómstólum af hálfu ríkislögreglustjóra frá embætti ríkislögreglustjóra til embættis sérstaks saksóknara. Til viðbótar þeim starfsmönnum sem á undanförnum árum hafa flust frá ríkislögreglustjóra til sérstaks saksóknara flytjast 14 stöðugildi til sérstaks saksóknara við þessi tímamót. Fjárveitingar til efnahagsbrotadeildar færast einnig frá ríkislögreglustjóra til sérstaks saksóknara og nema þær alls um 124 milljóna króna á ársgrundvelli. Ríkislögreglustjóri mun áfram annast móttöku tilkynninga á grundvelli laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnum hryðjuverka. Í formála nýútgefinnar ársskýrslu embættis ríkislögreglustjóra skrifar Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri af þessu tilefni:„Ég hef lengi talað fyrir því að sett verði á fót sérstök eining til að fara með mál er varða efnahagsbrot og að hlutverk ýmissa ríkisstofnana á því sviði verði endurskoðað. Við bankahrunið lagði ég til við Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, að stofnað yrði sérstakt embætti til að fara með mál sem vörðuðu hrunið. Á fyrsta fundi okkar Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra lagði ég áherslu á að næsta skref yrði að færa verkefni efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra til sérstaks saksóknara og að hafinn yrði undirbúningur að framtíðarskipan málaflokksins. Nú liggur þetta fyrir.Verkefni efnahagsbrotadeildar færast til sérstaks saksóknara hinn 1. september nk. Gert er ráð fyrir að samhliða þeirri breytingu verði skipuð nefnd til að endurskoða skipulag og tilhögun rannsókna og saksóknar í efnahagsbrotamálum og gera tillögur að heildarskipulagi til framtíðar. Þessari breytingu samfara færist ákæruvald frá ríkislögreglustjóra. Þar með lýkur þýðingarmiklu brautryðjendastarfi embættisins.Um árabil hef ég einnig hvatt til þess að skilja tollstjórn og sýslumannsverkefni frá lögreglustjórn. Mikilvæg skref hafa verið stigin í þessa átt og nú liggur fyrir Alþingi frumvarp innanríkisráðherra um aðskilnað sýslumannsverkefna frá lögreglustjórum og fækkun og stækkun lögregluliða.Jafnframt hef ég lagt á það áherslu að rétt sé að skilja ákæruvald frá lögreglustjórn. Við brottflutning ákæruvalds frá ríkislögreglustjóra er eðlilegt að sú skipan nái til allra lögreglustjóra landsins og að ákæruvaldið verði alfarið á ábyrgð ríkissaksóknara. Sú breyting myndi án efa efla tiltrú almennings á ákæruvaldinu og bæta meðferð sakamála."
Mest lesið Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Innlent Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Innlent Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Innlent Illvænlegar vendingar á veðurspánni fyrir helgina Veður Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Innlent Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Erlent Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Innlent Mælir gegn notkun á teflonvörum Innlent Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Erlent Fleiri fréttir Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Kobbi Láki kom stýrisvana skútu til bjargar Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Ekki sammála því að atvinnulífið hafi brugðist Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Gæti gosið á næstu dögum Samtök atvinnulífsins blása á gagnrýni formanns VR Segir Helga ekki hafa bætt ráð sitt Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Bilið aldrei meira milli karla og kvenna Lúxussnekkja Ratcliffe í Reykjavíkurhöfn Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Almennir borgara eltu uppi þjófa í tveimur aðskildum málum Hlaupið marki líklega upphaf á aukinni virkni í Kötlu Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Mælir gegn notkun á teflonvörum Taumlaus græðgi, hlaup og umdeild bílakaup „Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Einn slasaður í mótorhjólaslysi við Látrabjarg Íslenskir þjóðbúningar vekja lukku á Ólafsvöku Mohamad vill flytja af landi brott Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Sjá meira