Innlent

Breytingar hjá Strætó - vagnar hætta akstri klukkutíma fyrr

Breytingar verða gerðar á akstri Strætó þann 27. febrúar eða á sunnudaginn kemur. Strætó mun frá þeim tíma ljúka akstri klukkutíma fyrr öll kvöld og hefja akstur tveimur klukkustundum síðar á laugardögum. Jafnframt hætta leiðir 2 og 5 að aka á kvöldin og um helgar. Ástæður þessara almennu breytinga er samdráttur á framlögum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu til Strætó bs. Breytingar verða einnig gerðar á leiðum 16, 18, 19, 28, 35 og 36.

„Breytingin á kvöldakstri leiðir til þess að síðasta ferð allra strætisvagna verður klukkustund fyrr en áður. Þetta þýðir að síðasta ferð allra vagna fellur niður að leiðum 1, 3 og 6 undanskildum, en þar falla síðustu tvær ferðir kvöldsins niður. Á laugardögum fer fyrsta ferð allra vagna tveimur klukkustundum síðar af stað en áður,“ segir í tilkynningu frá Strætó.

Farþegum er bent á að kynna sér nánar nýtt leiðakerfi og tímatöflur á vefnum Strætó.is og í nýrri leiðabók sem fæst á öllum sölustöðum Strætó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×